Stór björgunaræfing í Skagafirði um aðra helgi
Laugardaginn 27. október verður haldin stór björgunaræfing í Skagafirði. Á æfingunni verður sett á svið stórt rútuslys og viðbrögð við því. Þannig munu allir viðbragðsaðilar á svæðinu koma að æfingunni, en þeir eru Almannavarnir, Brunavarnir Skagafjarðar, Lögreglan í Skagafirði, Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks, Rauði krossinn í Skagafirði og allar björgunarsveitir í Skagafirði.
Bjarni Kristófer Kristjánsson sem situr í landsstjórn björgunarsveita segir að til þess að æfingin verði sem raunverulegust er nauðsynlegt að fá leikara til að leika sjúklinga og aðstandendur þeirra.
-Við leitum nú eftir leikurum til að aðstoða okkur við æfinguna, bæði til að leika slasaða einstaklinga og aðstandendur þeirra. Leikarar þurfa að vera tiltækir frá kl 7 að morgni til um 17 síðdegis. Æfingarstjórn mun sjá leikurum fyrir mat og annarri hressingu á meðan á æfingu stendur. Það að taka þátt í slíkri æfingu er skemmtilegt og veitir einstakt tækifæri til þess að kynnast því hvernig viðbragðsaðilar í Skagafirði standa sig.
Þeir sem hafa áhuga á að leika sjúkling hafi samband við Bjarna Kristófer Kristjánsson - bjakk@holar.is eða í síma 8944771