Stórkostlegur söngur Draumaradda í litháenskum kastala
Stúlknakórinn Draumaraddir norðursins er nýkominn heim eftir vel heppnaða ferð til Litháens en þar var hann að endurgjalda heimsókn litháenska kórsins Allegro sem kom hingað fyrr í vetur. Ferðin gekk í alla staði vel og sterk tengsl mynduðust milli kóranna.
Kórinn kom fram á nokkrum stöðum og meðal annars fékkst leyfi til að syngja í kastala nokkrum sem Íslendingarnir skoðuðu. Þar var söngurinn tekinn upp á hreyfimynd og fylgir sögunni að allir þeir sem til heyrðu hafi nær fiðrast af hrifningu, svo mikil var gæsahúðin. Hljómurinn og söngurinn hafi verið svo magnaður. Hér fyrir neðan má heyra og sjá Draumaraddir syngja Söfðu unga ástin mín í fyrrnefndum kastala.
http://www.youtube.com/watch?v=_ZGiFJRW490&feature=youtu.be&fb_source=message