Stúlka slasast alvarlega
Tólf ára gamalt barn hlaut alvarlega áverka þegar það varð undir dráttarvél, sem var með sláttuvél í eftirdragi, á sveitabæ skammt frá Sauðárkróki í gær. Lögreglan kallaði eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug með stúlkuna suður til Reykjavíkur þar sem hún gekkst undir aðgerð í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var barnið búsett á bænum. Stúlkan er ekki í lífshættu, að sögn Mbl.is, og líðan hennar er eftir atvikum.