Styrkir einstaklinga í heimabyggð
Á dögunum styrkti Lionsklúbburinn Björk tvo einstaklinga um hundrað þúsund krónur hvort, en þau voru Brynja Árnadóttir og Magnús Jóhannesson.
Klúbburinn leggur áherslu á styrkja einstaklinga og stofnanir í heimabyggð. Auk þess sem hann styrkir ýmis önnur verkefni, bæði hér á landi og erlendis.
Að sögn Stefaníu Ósk Stefánsdóttur ritara klúbbsins er sala á plastpokum helsta fjáröflun hans og fer hún jafnan fram á haustin.
„Þá fá félagskonur alltaf góðar móttökur hjá bæjarbúum, og ég nota hér tækifærið og þakka fyrir það,“ segir hún. „Lionsklúbburinn Björk óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.“