Styrkir til rannsókna og varðveislu á menningararfi

Byggðasafn Skagfirðinga hefur verið tilkynnt að Menningarráð Norðurlands vestra muni styrkja þrjú verkefni fyrir árið 2012. Fornleifadeild safnsins fékk 300.000 kr. til áframhaldandi vinnu við gerð gagnagrunns um fornbyggð í Skagafirði og 600.000 kr. til skráningar og rannsókna minja í Málmey. Þriðji styrkurinn var 250.000 kr. til smíðar kljásteinsvefstóls, en slíkir vefstólar voru í notkun frá upphafi Íslandsbyggðar og allt fram á 19. öld. Fornverkaskólinn fékk einnig úthlutaðan styrk upp á 250.000 kr. fyrir verkefnið Alþjóðlegt námskeið í torfhleðslu - menningararfur og sjálfbær ferðaþjónusta.

Í Málmey er ætlunin að skrá allar fornar sem nýrri byggðaleifar. Jafnframt því að kanna hvort hægt verður að finna kirkju sem var í Málmey og fornan kirkjugarð, líkt og gert hefur verið víðar í héraðinu á undanförnum árum.

Um gerð gagnagrunnsins verða, samkvæmt heimasíðu Byggðasafnsins, færðar inn allar heimildir úr útkomnum bindum Byggðasögunnar í rafrænan gagnagrunn og á kort þannig að upplýsingarnar verði aðgengilegri til frekari rannsókna og kynningar. Bæði verkefnin eru samstarfsverkefni Byggðasafnsins og Byggðasögu Skagafjarðar.

Kljásteinsvefstóll til kennslu á fornum vefnaðaraðferðum

Sem fyrr segir stendur til að smíða kljásteinsvefstól en að sögn Sigríðar Sigurðardóttur, safnstjóra Byggðasafnsins, voru slíkir vefstólar í notkun frá upphafi Íslandsbyggðar og allt fram á 19. öld.

Stóllinn verður settur upp í Auðunarstofu til að byrja með og er ætlunin að nota hann til kennslu á fornum vefnaðaraðferðum. Gerð stólsins er hluti af samstarfsverkefni Byggðasafnsins, Safnamiðstöðvar Hörðalands í Noregi og Fornverkaskólans, um kennslu og varðveislu á fornum handverksaðferðum.

Safnaráð hefur einnig tilkynnt Byggðasafninu að þeir hafa hlotið tvo styrki úr Safnasjóði, annarsvegar 1.000.000 kr. til munaskráninga og 1.400.000 kr. í rekstrarstyrk.

Samkvæmt fundargerð Menningarráðs Norðurlands vestra frá 2. apríl sl. verða menningarstyrkirnir úthlutaðir í Félagsheimilinu Ljósheimum í Skagafirði fimmtudaginn 26. apríl kl. 17.00. Menningarráð samþykkti styrki til 67 aðila, samtals að upphæð 23,9 milljónir króna.

Fleiri fréttir