Suðrænn salsaviðburður á Hólum

Suðrænn salsaviðburður verður á Hólum í Hjaltadal nk. laugardag, þann 14. apríl. Búið er að setja saman skemmtilega dagkrá sem hefst kl. 14 með salsakennslu og lýkur með salsapartýi um kvöldið en þess á milli er farið í sund og boðið upp á fordrykk og hlaðborð með salsaívafi.

Herlegheitin byrja kl 14 á laugardaginn með Salsakennslu en að henni lokinni verður hægt að fara í sund eða sturtu og hafa sig til fyrir dagskrá kvöldsins sem inniheldur fordrykk, mat og svo skemmtilegan Salsadansleik. Dagskránni lýkur svo um klukkan 22,“ sagði Hildur Þóra Magnúsdóttir rekstrarstjóri Ferðaþjónustunnar á Hólum.

Um er að ræða samstarfsverkefni Ferðaþjónustunnar á Hólum og Dagbjartar Guðfinnsdóttur en viðburðurinn er hluti af lokaverkefni hennar við Ferðamáladeild skólans.

Verð á viðburðinn með öllu inniföldu er 4900 krónur og fer skráning fram á salsaaholum@gmail.com

 

Fleiri fréttir