Sumarið hafið hjá golfunnendum
Sumarið er hafið hjá kylfingum og margt framundan hjá Golfklúbbi Sauðárkróks á Hlíðarendavelli. Þar er fyrst á dagskrá Hvítasunnumót Loðfelds sem fer fram nk. laugardag og svo hefst Golfskóli Golfklúbbsins þriðjudaginn 5. júní nk.
„Völlurinn var opnaður fyrir klúbbmeðlimi og gesti þann 25. apríl sl. en það eru langt síðan að hægt var að opna golfvöllinn þetta snemma,“ segir Sigríður Elín Þórðardóttir formaður mótanefndar GSS.
Þetta er í fyrsta sinn sem haldið er Hvítasunnumót Loðfelds en Loðfeldur er aðalstyrktaraðili mótsins og hafa styrkt GSS mót áður. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og mæting því eigi síðar en 9:30.
„Upphafleg mótaskrá gerði ráð fyrir opnunarmóti 2. júní en þar sem völlurinn er kominn í frábært stand miðað við árstíma og veðurspáin er góð var ákveðið að halda þetta mót um helgina,“ segir Sigríður Elín.
Um er að ræða punktakeppni og hámarksleikforgjöf karla er 24 og kvenna 28 en í punktakeppni fá kylfingar punkta eftir höggfjölda á holu með tilliti til forgjafar hvers og eins, að sögn Sigríðar Elínar. Forgjöf segir til um getu kylfings, þ.e. allir byrjendur fá ákveðna forgjöf en hún getur verið mismunandi eftir völlum og löndum. Fyrirkomulagið er byggt á svokölluðu Stableford, um það má sjá nánar hér.
Golfskóli fyrir krakka
Golfskóli GSS hefst þriðjudaginn 5. júní, sem fyrr segir, og verður hann starfræktur mánudaga til fimmtudaga í sumar frá kl. 10 – 15 og föstudaga kl. 10 - 12. Golfskólinn ætlaður fyrir 7 – 11 ára (yngsti árgangur 2005) verður milli kl. 10 og 12. Síðan verða 12 ára og eldri á milli kl. 10 og 15.
„Þjálfari í golfskólanum alla daga í sumar verður Thomas Olsen golfkennari frá Danmörku. Honum til aðstoðar verða reynslumiklir unglingar úr klúbbnum,“ segir Sigríður Elín.
Gjald er kr. 15.000 fyrir 7-11 ára og kr. 20.000 fyrir 12-16 ára. Þetta gjald er fyrir allt sumarið og inni í því er aðgangur að vellinum fyrir sumarið.