Sundið vinsælt á Hofsósi
Mikil ásókn hefur verið í sundlaugina á Hofsósi þá daga sem hún hefur verið opin nú um frídagana. Á skírdag var „alveg stappað“ svo notuð séu orð eins sundlaugargestsins og í gær var mikið að gera samkvæmt starfsmanni sundlaugarinnar.
Í dag, páskadag, er lokað í sundlauginni á Hofsósi en á morgun, annan í páskum, verður opið frá kl. 17:15-20:15.
Í Varmahlíð verður sundlaugin lokuð í dag en annar í páskum verður opið frá kl. 10:00-18:00. Á Sauðárkróki verður sundlaugin hins vegar opin í dag milli kl. 15:00-18:30 og á morgun 9. apríl, annar í páskum, frá kl. 10:00-16:00.