Sveiflukennt gegn Stjörnunni
Tindastóll lék í gærkvöldi gegn Stjörnunni í Garðabæ í Dominos-deildinni í körfubolta. Stjörnumenn skipa eitt af betri liðum deildarinnar og er skemmst frá því að segja að Stólarnir höfðu ekki erindi sem erfiði þrátt fyrir að hafa á köflum spilað ágætan körfubolta og sýnt góða baráttu. Lokatölur 101-84.
Það var skarð fyrir skildi að Þröstur Leó var ekki til taks í gærkvöldi en nokkur meiðsli herja á Tindastólsmenn og það er ekki beinlínis þannig að liðið megi við því. Pétur Rúnar Birgisson kom inn í byrjunarlið Stólanna og hann gerði fyrstu stigin í leiknum þegar hann baunaði niður einum þristi. Lið Tindastóls kom einbeitt til leiks og hafði í fullu tré við heimamenn í fyrsta leikhluta. Pétur kom Stólunum yfir, 15-16, með 3ja stiga körfu um miðjan leikhlutann en það voru heimamenn sem voru stigi yfir, 26-25, að leikhlutanum loknum.
Valentine kom Stólunum yfir í byrjun annars leikhluta en þá komu 11 stig í röð hjá heimamönnum á tveimur mínútum án þess að Stólarnir næðu að svara og skyndilega hafði leikurinn hlaupið frá gestunum. Þeir náðu þó að setja fyrir lekann í nokkrar mínútur en Stjörnumenn náðu öðru góðu áhlaupi skömmu fyrir leikhlé og voru 3ja stiga skyttur heimamanna búnar að kortleggja fjalirnar í Ásgarði þegar þarna var komið sögu. Staðan 59-42 í hálfleik.
Þriðji leikhluti var ágætur hjá Stólunum sem náðu að saxa á forskot Stjörnunnar og náðu muninum niður í 8 stig, 64-56, þegar leikhlutinn var rúmlega hálfnaður. Stjörnumenn börðu í brestina og bættu við forskotið áður en leikhlutinn var úti og í lokafjórðungnum voru heimamenn sterkari og juku forskotið í 20 stig en lokatölur sem fyrr segir 101-84.
Tindastóll er á botni deildarinnar að 12 umferðum loknum. Það eru 10 umferðir eftir og nóg af stigum í pottinum en ljóst að Tindastólsmenn verða að halda vel á spöðunum ef þær ætla ekki að skoða sig um í 1. deildinni næsta vetur. Nokkur liðanna í deildinni hafa styrkt lið sitt eftir jólafrí og spurning hvort Stólarnir þurfa ekki að fara að horfa í kringum sig.
Næsti leikur er strax á fimmtudaginn en þá koma Vesturbæjarkóngarnir í KR í heimsókn í Síkið. Þá væri ekki slæmt að setja í gírinn og bensínið í botn – áfram Tindastóll!
Stig Tindastóls: Valentine 23/11 frk, Gibson 15/8 sto., Helgi Rafn 12/9 frk., Pétur Rúnar 11, Helgi Freyr 8, Svavar Atli 7, Hreinn Gunnar 6 og Sigtryggur Arnar 2.