Sveinn Arnar frá Syðstu-Grund bæjarlistamaður Akraness
Sveinn Arnar Sæmundsson frá Syðstu-Grund í Blönduhlíð hefur verið tilnefndur bæjarlistamaður Akraness næsta árið en Sveinn er organisti og stjórnandi kóra Akraneskirkju. Tilnefningin fór fram við athöfn í þjóðhátíðardagskrá í bænum sl. sunnudag.
„Þetta er mikill heiður fyrir mig og kannski ekki síst kórinn okkar, sem er fjölmennur og fólk áhugsamt um það sem við erum að gera. Þetta er hvetjandi fyrir mig til að halda áfram að reyna að gera góða hluti,” segir Sveinn Arnar í viðtali við Skessuhornið.
Um Svein Arnar segir m.a. í frétt á Skessuhorninu:
Það eru að verða tíu ár síðan Sveinn Arnar réðst til starfa sem organisti og kórstjórnandi við Akraneskirkju. Hann er fæddur og uppalinn á Syðstu-Grund í Blönduhlíð í Skagafirði. Þar byrjaði hann sem organisti og kórstjórnandi við kirkjurnar í Flugumýrar- og Miklabæjarsókn og var í afleysingastarfi við kirkjur á Akureyri áður en hann flutti til Akraness.
„Starfsumhverfið mitt er afar vinalegt og þar á ég mínu góða samstarfsfólki mikið að þakka. Og síðast en ekki síst á ég góða eiginkonu og fjölskyldu sem styður við bakið á sveimhuga listamanni sem er kannski ekki alltaf tengdur við jörð,” sagði Sveinn Arnar að endingu.
Hér má lesa viðtalið í heild sinni.