Sveitarstjórnarfundur Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Næsti fundur sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 28. mars. Mun hann hefjast kl. 16:15 í Safnahúsinu við Faxatorg og verður þetta 288. fundur sveitarstjórnar.
Á fundinum verður farið yfir fundargerðir hinna ýmsu nefnda og stjórna, bæði til kynningar og staðfestingar. Einnig verður til umræðu tillaga um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda. Hér má sjá nánari upplýsingar um dagskrá.
Hlusta má á útsendingu frá fundinum á heimasíðu Sveitarfélagsins, með því að smella á hlekk vinstra megin á síðunni, þar sem stendur: „Útsending frá fundum sveitarstjórnar“.