Sveitasæla hjá nemendum Varmahlíðarskóla

Nú er sauðburður hafinn en þá er hver vinnandi hönd verðmæt í sveitum landsins. Sveitadagar er framlag Varmahlíðarskóla til samfélagsins og njóta allir góðs af. Nemendur skólans eru þá fimm daga við störf í sveit, einhverjir heima hjá sér og aðrir hjá vinum, vandamönnum eða einhverjum þeim sem þeir kjósa að vera hjá, segir Ágúst Ólason skólastjóri Varmahlíðaskóla í samtali við Feyki.  

Markmiðin með þeim eru m.a. að efla vitund nemenda fyrir náttúrunni og þeim breytingum sem vorið ber með sér, að kynna fjölbreytileika nærsamfélagsins fyrir nemendum, að kynna búskaparhætti og heimabyggð fyrir nemendum. Einnig að laga skólahaldið að óskum og þörfum heimabyggðar í sveit og að kynna verknám fyrir nemendum,“ segir Ágúst.

Samkvæmt Ágústi er áralöng hefð fyrir sveitadögum í Varmahlíðarskóla þó þeir hafi ekki ávallt verið eins útfærðir. Upphaflega komu þeir til sögunnar með samstarfi fjögurra skóla um heimabyggðarverkefni. Skólarnir voru Varmalandsskóli í Borgarfirði, Húnavallaskóli, Grunnskólinn á Laugabakka í Miðfirði og Varmahlíðarskóli.

Nú var ákveðið að þetta væru fimm dagar og að allir nemendur skólans tæku þátt en seinasti dagur sveitadaga er á morgun. „Gengið er út frá að þetta fari fram á skólatímanum en sumir nemendur taka mun meiri þátt,t.d. með því að vaka yfir sauðburði,“ segir Ágúst en nemendur eru allir með skólaverkefni með sér, ólík eftir aldri, sem þeir vinna að með umsjón foreldra og eða annarra forráðamanna þessa daga.

„Einhverjir kanna búskaparhætti, jarðveg, sáningu og grastegundir, veðurfar, fuglalíf og örnefni svo eitthvað sé nefnt. Auk þessa rita allir nemendur skólans dagbók fyrir hvern dag,“ segir hann. Mikil ánægja ríkir með þetta fyrirkomulag og segir Ágúst að foreldrar séu afar hlynntir þessum þætti í skólastarfinu, sem er mjög mikilvægt til að þetta gangi upp.

 

Fleiri fréttir