Sverrir Bergmann og Fjallabræður í Háskólabíói

Næstkomandi laugardagskvöld, 24. nóvember mun Sauðkrækingurinn Sverrir Bergmann ásamt Fjallabræðrum og Lúðrasveit Vestmannaeyja koma fram á tvennum tónleikum í Háskólabíói. Á tónleikunum verður meðal annars frumflutt í fyrsta skipti á sviði í fullum skrúða lagið Ísland sem er hluti af verkefninu Þjóðlag sem nú þegar 20.000 manns af öllu landinu hafa tekið þátt í.

Á sviðinu verða yfir 100 manns og auk Sverris Bergmann mun Magnús Þór Sigmundsson koma fram sem gestasöngvari.

Miðasala fer fram á Midi.is

Fleiri fréttir