Svf. Skagafjörður framlengir tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda

Á fundi Sveitarstjórnar Sveitarfélagins Skagafjarðar þann 28. mars sl. ákveðið að framlengja ákvæði sem kveður á að fella tímabundið niður gatnagerðargjöld af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð. Ákvæðið hafði verið samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 22. febrúar 2011 og gilti til 1. júlí 2012 en hefur nú verið framlengt til 1. júlí 2013.

Á heimsíðu sveitarfélagsins segir að í greinargerð með tillögu meirihluta sveitarstjórnar hafi komið fram að mikill skortur hafi verið á íbúðarhúsnæði í Sveitarfélaginu Skagafirði að undanförnu. Það eigi bæði við um húsnæði til sölu og ekki síður framboð á leiguíbúðum. Markmið samþykktarinnar er að greiða fyrir því að einstaklingar og fyrirtæki sjái sér hag í að ráðast í byggingu íbúða, parhúsa og einbýlishúsa í sveitarfélaginu.

Hér má sjá kort sem Tæknideild Svf. Skagafjarðar hefur nú birt á með staðsetningu lóðanna sem um ræðir.

 

Fleiri fréttir