Svipmyndir frá 17. júní

Veður var með besta móti á Norðurlandi vestra á Þjóðhátíðardaginn og var að venju farið í skrúðgöngu á Sauðárkróki og gengið að Flæðunum. Þar var boðið var upp á fjölbreytt skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa.

Skrúðgangan hófst hjá Skagfirðingabúð og komu bæjarbúar þar saman í brakandi blíðu og hófu undirbúning fyrir gönguna, en þar var hægt að fá andlitsmálningu og blöðrur.

Á Flæðunum var heilmikið um að vera og margt gert til skemmtunar. Þar flutti Ágúst Ólason skólastjóri Varmahlíðarskóla flutti hátíðarávarp, fjallkonan Margrét Petra Ragnarsdóttir fór með ljóð og svo tóku leikskólakrakkar frá Ársölum lagið fyrir áhorfendur. Að því loknu voru haldnir tónleikar, boðið upp á skátatívolí og börnum boðið á hestbak.

Hér má sjá myndir frá 17. júní á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir