Sýningar á kvikmyndum frá RIFF hefjast í kvöld

Í þessari viku sýnir Kvikmyndagerðarhópur FNV, í samvinnu við RIFF og Króksbíó á Sauðárkróki, fjórar myndir frá RIFF hátíðinni og mun fyrsta myndin verða til sýningar í kvöld kl. 20:00. Myndirnar verða allar sýndar með enskum texta.

Í kvöld verður sýnd heimildarmyndin Fokkens hórurnar eða Ouwehoeren. Um myndina segir:

Louise og Martine Fokkens eru eineggja tvíburar og vel þekkt andlit í Rauða hverfinu í Amsterdam. Þær voru vændiskonur í yfir fimmtíu ár. Þær losnuðu undan oki melludólganna sinni, ráku eigið hóruhús, og stofnuðu fyrsta óformlega verkalýðsfélag vændiskvenna. Þetta er saga þeirra.“

http://www.youtube.com/watch?v=WEan54w4Lp8&feature=player_embedded
Á fimmtudagskvöld kl. 20:00 verður sýnd danska heimildarmyndin Ambassadøren eða Sendiherrann. Um myndina segir:

„Undarlegur, dularfullur og úrkynjaður hvítur diplómati lendir í mið-Afríku. Hann er nýbúinn að kaupa sér sendiherrastöðu og segist vera ríkur og umsvifamikill umbótamaður sem fari fyrir diplómatísku verkefni. Opinberlega er hann þangað kominn til að stofna eldspýtnaverksmiðju. Óopinberlega ætlar hann að tryggja sér aðgang að gríðarlegum demantabirgðum. Sendiherrann er grátbrosleg mynd um furðulegan heim afrískra utanríkismála.“

http://www.youtube.com/watch?v=OWog6OgQmHs

 

Á sunnudag kl: 15:00 verður sýnd Suður-Kóreska teiknimyndin Maðkar eða Larva. Um hana segir:

Úr Suður-Kóresku teiknimyndinni Maurar eða Larva.

„Tveir furðulegir maðkar, Gulur og Rauður, búa óafskiptir við niðurfall eitt í bænum. Á þessum leynistað njóta þeir alls kyns drasls sem fólk hefur kastað í ræsið eins og tuggnu tyggjói, bráðnum ís, smápeningum, hringjum og hinu og þessu.“

Síðasta myndin verður sýnd kl: 17:00 á sunnudag og heitir Allir í fjölskyldunni eða Everybody in our Family (Toata lumea din familia noastra). Kvikmyndin er ungversk/hollensk bíómynd eftir verðlaunaleikstjórann Radu Jude.Um hana segir:

„Nútímamaðurinn bregst í grunninn við streitu með sama hætti og forfeður okkar: hann gerir árás eða flýr af vettvangi. Burtséð frá timburmönnunum, foreldrum sínum, baráttunni við nikótínið og ýmis bílavandræði, þá hefur Marius Vizereanu mestar áhyggjur af yfirvofandi heimsókn til dóttur sinnar Sofiu sem býr nú með ömmu sinni, móður og nýja kærastanum hennar...“

http://www.youtube.com/watch?v=NFGzl6uTGL4&feature=player_embedded

Fleiri fréttir