Sýningin í Glaumbæ 60 ára í dag
Í dag 15. júní eru 60 ár liðin frá því að sýning var opnuð í gamla bænum í Glaumbæ. Í tilefni af því býður safnið gestum sínum að ganga í bæinn, gjaldfrítt.
Byggðasafn Skagfirðinga er stofnað 1948 en sýningin í Glaumbæ var opnuð þann 15. júní 1952 og hefur verið einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í héraðinu.
Um bæinn segir á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga:
Bærinn í Glaumbæ er samstæða þrettán húsa. Níu þeirra opnast inn í göng sem svo eru kölluð og eru mjór gangur, sem liggur frá bæjardyrum til baðstofu, sem er aftasta húsið í húsaþyrpingunni. Sex húsanna snúa gafli/burstum að hlaði og hægt að ganga inn um þau þaðan. Þetta eru kölluð framhúsin. Inn í eitt bakhúsanna, sem svo eru kölluð, er hægt að ganga og eru það bakdyr bæjarins þar sem heimilisfólk gekk vanalega um.
Fyrsta sýning safnsins var opnuð þar þann 15. júní árið 1952 og fjallaði hún, þá sem nú, um mannlíf í torfbæjum. Glaumbær er í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Starfssvæði Byggðasafns Skagfirðinga, sem er elsta byggðasafn landsins, er allur Skagafjörður og í dag er safnið með bækistöðvar á nokkrum öðrum stöðum í héraðinu.