Sýnishorn frá skoðunarferð í Gæðings brugghús
FeykirTv tók forskot á sæluna og fór í ógleymanlega skoðunarferð um brugghús Gæðings í Útvík hjá honum Árna Hafstað bruggara. En hann verður einmitt með opið hús núna um helgina þar sem gestum og gangandi er velkomið að koma og skoða starfsemina auk þess að fá að smakka hinar ýmsu tegundir bjórs. Óhætt er að segja að útsendari FeykirTv hafi komið aðeins glaðari úr þessari ferð en hann kom inn í hana og mælum við með því að fólk láti sig ekki vanta og kynni sér starfsemina, hvort sem það smakki veigarnar eða ekki. Áhugavert svo ekki sé meira sagt.
http://www.youtube.com/watch?v=eO5ya25KYqE