Tap gegn Fjölni
Meistaraflokkur Tindastóls í knattspyrnu tapaði 2:0 fyrir Fjölni í gærkvöldi þegar liðin mættust á Fjölnisvelli í gær. Fjölnisliðið er þá komið í efsta sæti 1. deildar karla en á sama tíma og Þór Akureyri, sem var á toppnum, tapaði fyrir KA, 3:2. Mbl. greinir frá þessu.
Það voru þeir Bjarni Gunnarsson og Þórir Guðjónsson sem settu boltann í netið fyrir Fjölni. Sem fyrr segir er Fjölnir þá efst í deildinni með 15 stig en Tindastóll í því áttunda með sjö stig.
Hér má skoða myndir frá leiknum.