Tap gegn KR í vikunni – Leikur gegn Fjölni í Síkinu í kvöld

Tindastóll spilaði gegn KR síðastliðinn fimmtudag í DHL-höllinni. Ekki höfðu strákarnir sigur í hröðum leik sem einkenndist af mýmörgum villum og töpuðum boltum. Lokatölur voru 90-69 fyrir KR.

Stólarnir voru yfir 2-0 og 4-2 en síðan ekki söguna meir. Jafnræði var þó með liðunum í fyrsta leikhluta en að honum loknum voru KR-ingar yfir 24-20. Heimamenn náðu síðan 10 stiga forskoti fljótlega í öðrum leikhluta og í hálfleik var staðan 47-35. Svipað var uppi á teningnum í síðari hálfleik, KR-ingar sterkari aðilinn og ekki hvað síst vegna þess að þeir tóku helmingi fleiri fráköst í leiknum en Tindastólsmenn, 39 gegn 20. Það kann sjaldnast góðri lukku að stýra og lokatölur því sem fyrr segir 90-69.

Fimm leikmenn Tindastóls gerðu 12 stig í leiknum en aðrir minna. George Valentine tók 10 fráköst fyrir Stólana eða helming þeirra frákasta sem liðið tók og hann stal 4 boltum.

Í kvöld, sunnudaginn 14. október, fá Stólarnir sprækt lið Fjölnis í heimsókn í Lengjubikar karla. Leikurinn hefst kl. 19:15 og það er um að gera fyrir stuðningsmenn Tindastóls að fjölmenna í Síkið og klappa liðið í gang.

Fleiri fréttir