Tekið til kostana um helgina - síðasti skráningardagur á Vorsýningu kynbótahrossa í dag
Stórsýningin Tekið til kostanna fer fram í reiðhöllinni Svaðastöðum um næstu helgi, dagana 20.-21. apríl. Sýningin mun að vanda standa saman af fjölbreyttum atriðum, samkvæmt heimasíðu reiðhallarinnar, þar sem gæðingar vítt og breytt af landinu verða í forgrunni. Dansleikur verður um kvöldið á Mælifelli með hljómsveitinni Spútnik að lokinni sýningu.
Í dag, þriðjudaginn 17. apríl, lýkur skráningu á fyrstu kynbótasýningu ársins, Vorsýning kynbótahrossa. Tekið er á móti skráningum á Leiðbeiningamiðstöðinni 455-7100 / ee@bondi.is.
Sérstakur gestur Tekið til kostanna verður stórknapinn Artimisia Bertus sem mætir m.a. með Óskar frá Blesastöðum. Þetta árið verður einnig bryddað upp á nýjungum en valinn verður glæsilegasti hestur sýningarinnar og besta atriði sýningarinnar og er þar keppt um verðlaunafé að upphæð 25.000 kr. fyrir hvort atriði. Þá verða einnig veitt verðlaun í skeiði.
Nöfn þessara þriggja verðlaunahafa koma til með að verða letruð á verðlaunagrip sem varðveittur verður í Svaðastaðahöllinni og gripurinn mun í framtíðinni safna nöfnum þeirra sem skara fram úr á Tekið til kostanna.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Föstudagurinn 20. apríl
- Vorsýning kynbótahrossa
- Kl: 10:00 Byggingadómar
- Kl: 13:00 Hæfileikadómar
- (birt með fyrirvara um breytingar)
Laugardagurinn 21. apríl
- Kl. 10:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa
- Kl. 13:00 Kennslusýning reiðkennaraefna Hólaskóla – „Frá feti upp í flugaskeið“
- Þar munu reiðkennaranemar Hólaskóla útskýra fyrir áhorfendum vinnubrögð við tamningar og þjálfun. Reiðkennslusýning Hólaskóla hefur verið árlegur viðburður í tengslum við Tekið til kostanna og ávalt vakið mikla athygli og ánægju á meðal gesta. Sýningin er öllum opin og engin aðgangseyrir.
- Kl. 20:00 Stórsýningin Tekið til kostanna
- Kl. 23:00 Tekið til kostanna dansleikur á Mælifelli
- ...og fleira sem kemur á óvart.
Þess má geta að Sögusetur íslenska hestsins – Sögusetrið á Hólum verður opið milli 16:00 og 18:00 laugardaginn 21. apríl. Um er að ræða skemmtilega og fróðlega sýningu í Gamla hesthúsinu á Hólum.
Forsala aðgöngumiða fer fram á orkusölunni Bláfelli, Sauðárkróki. Miðaverð: 2.500 kr. Sýningarstjóri: Eyþór Einarsson 862-6627.
Heimildir:
stigandafelagar.123.is
svadastadir.is