Telma Ösp besti byrjandinn

Meistaramót byrjenda GSS var haldið í gær mánudaginn 13. ágúst á Hlíðarendavelli. Fimm þátttakendur mættu til leiks að þessu sinni en það voru þau Helgi Hrannar Ingólfsson, Maríanna Ulriksen, Hildur Heba Einarsdóttir, Telma Ösp Einarsdóttir og Anna Karen Hjartardóttir.

Eftir skemmtilega keppni var það Telma Ösp sem stóð uppi sem sigurvegari, í öðru sæti varð Maríanna Ulriksen, í þriðja sæti varð Hildur Heba, fjórði varð síðan Helgi Hrannar og í því fimmta varð síðan Anna Karen.

/HG

    

 

Meðfylgjandi myndir sendi Hjörtur Geirmundsson og eru frá verðlaunaafhendingunni.

Fleiri fréttir