Það er menning á Hólum

Veðrið var gott í gær og andrúmsloftið einnig á Hólum. Mynd: SMH
Veðrið var gott í gær og andrúmsloftið einnig á Hólum. Mynd: SMH

"Já þetta hefur bara verið gott sumar, það náttúrulega lyftir alltaf upp mannlífinu þegar það er gott veður," sagði Kristinn Hugason, forstöðumaður Söguseturs Íslenska hestsins, þegar blaðamaður Feykis heimsótti Hóla í gær.

Um miðjan dag skellti blaðamaður sér í Hóla og heimsótti Sögusetrið, sem hann ætlaði fyrir löngu að vera búinn að gera. Kristinn Hugason tók vel á móti honum og leiðsagði honum um setrið af sinni stakri snilld.

"Það hefur verið alveg einstakt veður hér á Hólum í sumar komið vel af gestum hingað á sögusetrið," sagði Kristinn spruður út í aðsóknina á setrið.

Að lokinni heimsókn í sögusetrið tók blaðamaður eftir mannlífi hinum megin við götuna ef kalla má götu. Þar sátu búsmenn Hólabúsins að svala þorstanum á Bjórsetri Íslands í góða veðrinu. 

"Sumarið er búið að vera mjög gott, við erum bara með opið eftir be hag, og það lítur vel framundan," sagði Bjarni. 

Bjórsetrið er opið annað slagið, yfirleitt alltaf á föstudögum upp úr 21, nema þegar Bjarni er ekki heima. 

Og hvað er svo í boði á Bjórsetrinu?

"Bjór," sagði Bjarni að lokum.

Já stemningin var góð á Hólum í gær og blaðamaður er tilbúinn til að mæla með því að fólk geri sér ferð í Hóla. Hann heldur því jafnframt fram, að ef það er hvasst á Króknum, þá er logn á Hólum.

 /SMH

 

Fleiri fréttir