Þjálfaramál yngri flokkanna að skýrast

Þjálfaramál yngri flokka Tindastóls í körfunni eru nú að taka á sig mynd og búið að skipa í stöður allra þeirra 11 flokka sem áformað er að taki þátt í Íslandsmótinu á næsta tímabili. Fyrirhugaðar eru skipulagsbreytingar á þjálfunarfyrirkomulaginu

Á Tindastóll.is segir að gera eigi breytingar í þjálfunarskipulagi eldri yngri flokkanna og er það til þess gert að fá betri yfirsýn yfir stöðu árganganna. Þjálfarar munu nú hafa yfirumsjón með þjálfun fleiri flokka en áður og fleiri leikmenn spila með fleiri en sínum eigin flokki en áður. Þetta er gert til að fjölga leikjum eldri yngri flokkanna, en okkar krakkar hafa verið að spila allt of fáa leiki miðað við jafnaldra þeirra t.d. á Reykjavíkursvæðinu.

Bárður Eyþórsson mun verða yfirþjálfari 11. flokks drengja, drengjaflokks og unglingaflokks karla, en áformað er að senda alla þessa flokka til leiks í Íslandsmótinu. Bárður mun líklega hafa einn aðstoðarþjálfara sér við hlið. Þeir iðkendur sem verða í FNV eiga kost á að æfa körfuknattleik í akademíunni og fá það metið til eininga. Bárður mun auk þess sjá um morgunæfingar og körfuboltaskólann.

Karl Jónsson mun verða yfirþjálfari 9. flokks stúlkna, 10. flokks stúlkna og stúlknaflokks en allir þessir flokkar taka þátt í Íslandsmótinu. Hérna er um framtíðarmeistaraflokk Tindastóls að ræða. Karl mun hafa aðstoðarþjálfara sér við hlið í þessu verkefni. Elstu stúlkurnar í þessum hópi eiga þess kost að æfa í körfuboltaakademíunni í FNV og þeim yngri stendur til boða að sækja morgunæfingar tvisvar í viku, auk körfuboltaskólans.

Oddur Benediktsson, nýráðinn þjálfari körfuknattleiksdeildar, mun þjálfa 8. flokk drengja, 9. flokk drengja og 10. flokk drengja og taka allir þessir flokkar þátt í Íslandsmótinu. 8. og 9. flokkur æfa saman en 10. flokkur sér. Þó eru uppi hugmyndir að hafa þessa flokka saman á æfingum kannski 1-2 sinnum. 9. og 10. flokkarnir eiga þess kost að sækja morgunæfingar auk körfuboltaskólans, en 8. flokkur hefur körfuboltaskólann sem sína aukaæfingu.

Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir mun þjálfa 8. flokk stúlkna, sem í verða árgangar 99 og 2000. Þær munu taka þátt í Íslandsmótinu og hafa körfuboltaskólann sem aukaæfingar í vetur eins og áður. Þessar stúlkur kláruðu síðasta tímabil með sigri í B-riðli og ljóst að þar er um efnilegan hóp að ræða.

Hreinn Gunnar Birgisson verður þjálfari 7. flokks drengja sem tekur þátt í Íslandsmótinu. Í 7. flokki verða strákar fæddir 2000 og 2001 og stíga þeir sín fyrstu skref í Íslandsmótinu á næsta keppnistímabili. Strákarnir munu hafa aðgang að körfuboltaskólanum til aukaæfinga.

Alls er því fyrirhugað að 11 yngriflokkar taki þátt í Íslandsmótinu á næsta keppnistímabili og hafa þeir sjaldan eða aldrei verið fleiri í einu.

Sjá nánar á Tindastóll.is

Fleiri fréttir