Þjónustan skiptir öllu

Farskólinn – miðstöð símenntunnar á Norðurlandi vestra býður upp á námskeið sem kallast „Þjónustan skiptir öllu“, í samstarfi við félag ferðaþjónustuaðila í Skagafirði. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Farskólans miðvikudaginn  6. júní nk., frá kl. 9 – 14.

Námskeiðið er ætlað þeim sem á einhvern máta starfa við að þjónusta ferðamenn, bæði innlenda og erlenda, sem sækja Skagafjörð heim,“ segir í námskeiðslýsingu.

Þar verður Þjónustuhugtakið rætt út frá mörgum hliðum og ýmsum spurningum varpað fram, t.d. hvað er góð þjónusta? Skiptir hún máli? Geta allir veitt góða þjónustu? Hvaða máli skiptir útlit og klæðaburður? Eiga allir rétt á góðri þjónustu? Hvað með viðskiptavini sem eru fullkomlega óþolandi? Hvað græðum við sjálf á því að veita framúrskarandi þjónustu?

Leiðbeinandi verður Erla Björg Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Símeyjar en hún nam ferðamálafræði við Hólaskóla og síðan viðskiptafræði í HA.

Skráning fer fram í s. 4556010 eða á netfangið farskolinn@farskolinn.is eða svanhild@hotelvarmahlid.is. Verð er 9.900 kr. og er hádegisverður innifalinn.

Fleiri fréttir