Þór vann öruggan sigur á Tindastóli

Tindastóll sótti Þór Akureyri heim í kvöld og unnu heimamenn þar þægilegan 4-0 sigur en Þórsarar réðu ferðinni allan leikinn. Þetta var eina viðureignin í 1. deildinni í kvöld en leiknum var frestað fyrr í sumar þegar Akureyringarnir tóku þátt í Evrópukeppninni.

Orri Freyr Hjaltalín skoraði eina mark fyrri hálfleiks, en í þeim síðari gerðu þeir Ármann Pétur Ævarsson, Krstinn Þór Björnsson og Jóhann Helgi Hannesson sitt markið hver. Það var helst Max Touloute sem ógnaði marki Þórsara en hann hafði ekki erindi sem erfiði.

Þórsarar hafa nú komið sér kyrfilega fyrir á toppi 1. deildar og má fullyrða að þeir hafi á að skipa sterkasta liðinu í deildinni og það þarf allt að fara úrskeiðis á þeim bænum til að þeir fari ekki upp í Pepsi-deildina. Tindastóll er hinsvegar sem fyrr í níunda sæti 1. deildar og það var helst markatalan sem fékk á sig neikvæðan blæ í kvöld.

Það er þó ljóst að Stólarnir verða að lyfta sér upp fyrir leikinn á laugardaginn en þá kemur Leiknir Reykjavík í heimsókn á Krókinn og er um sannkallaðann fallslag að ræða. Þá dugar ekkert annað en hafa hausinn í lagi. Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir