Þórir fór holu í höggi á Hlíðarenda
Þórir Vilhjálmur Þórisson úr Golfklúbbi Akureyrar gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki síðastliðinn laugardag en þá var haldið mót í Norðurlandsmótaröð láforgjafarkylfinga.
Á heimasíðu Golfklúbbs Sauðárkróks segir að draumahögg allra kylfinga hafi Þórir slegið á þriðju braut vallarins, sem er 151 metri af gulum teigum. GSS óskar Þóri kærlega til hamingju með afrekið og tekur Feykir heilshugar undir það.