Þráinn Freyr á NBC

Í gær hófst í Washington í Bandaríkjunum hátíðin A Taste of Iceland þar sem kynnt verður íslensk menning, hvort sem hún er ætluð í eyru, augu eða munn. Nokkrar frægustu hljómsveitir landsins munu spila fyrir gesti, íslenskar kvikmyndir sýndar og skagfirski meistarakokkurinn Þráinn Freyr Vigfússon mun kynna íslenska matinn.

Þráinn Freyr mun reiða fram dýrindis fjögurra rétta matseðil og að sjálfsögðu mun íslenskt hráefni gegna lykilhlutverki í matseldinni. Þráinn var gestur í morgunþætti NBC sjónvarpsstöðvarinnar í gærmorgun sem hægt er að sjá HÉR

Gaman er að geta þess að Skagfirðingar fá að njóta eldamennsku Þráins á Galakvöldi Tindastóls í lok apríl en þar verður lögð áhersla á að gestir njóti alls hins besta í þjónustu, mat og drykk ásamt metnaðarfullrar dagskrár sem í boði verður. Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir