Þriðji flokkur karla í kanttspyrnudeild Tindastóls selur SÁÁ álfinn
Dagana 15.-20. maí mun 3. flokkur karla í knattspyrnudeild Tindastóls ganga í hús í Skagafirði og selja SÁÁ álfinn. Einnig verður álfurinn boðinn til sölu í Skagfirðingabúð og í KS Varmahlíð. Álfurinn kostar 2.500 kr.
Fleiri fréttir
-
Sæti í úrslitakeppninni hangir á bláþræði
Það skiptast á skin og skúrir í körfuboltanum. Síðasta vor flugu Stólar og stuðningsmenn með himinskautum. Nú á liðið einn og einn góðan leik og þrátt fyrir að Stólarnir hafi aldrei haft jafn öflugan leikmannahóp á sínum snærum er átakanlegt að horfa á liðið kasta frá sér sigri sí ofan í æ. Í dag endurtók sagan sig á Egilsstöðum þar sem lið Hattar snéri leiknum við í fjórða leikhluta og skaust upp fyrir lið Tindastóls í deildinni og tryggði sér um leið sæti í úrslitakeppninni. Lokatölur 87-82 og nú er staðan sú að ef Höttur vinnur sinn leik í lokaumferðinni og Stjarnan og Tindastóll sína, þá eru meistararnir komnir í sumarfrí, en tapi Höttur þá fer Stjarnan í frí. Það verða því nagaðar neglur næstu daga í Skagafirði og víðar.Meira -
Grafin gæs og bleikja
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 28.03.2024 kl. 15.00 siggag@nyprent.isMatgæðingar vikunnar i tbl. 18 í fyrra voru Eiður Baldursson og Þórey Gunnarsdóttir í Fellstúninu á Króknum. Eiður og Þórey eiga og reka Grettistak veitingar en Þórey er einnig grunnskólakennari og vinnur við það. Þau eiga saman fjögur börn, Söndru Sif, Sólveigu Birtu, Arnar Smára og Árdísi Líf. Eiður var ekki lengi að taka ákvörðun um hvað ætti að bjóða upp á í þessum matarþætti og fáum við hér uppskriftir að grafinni gæs og hægeldaðri bleikju.Meira -
HEITASTA GJÖFIN - „Kaldsvitnaði yfir að muna ekki trúarjátninguna“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 28.03.2024 kl. 14.00 siggag@nyprent.isÞórður Karl Gunnarsson fæddist á Siglufirði á því herrans ári 1985 en flutti svo á Krókinn árið 1990. Þórður, sem býr í Eyrartúninu á Sauðárkróki, er giftur Arneyju Sindradóttur og eiga þau saman þrjú börn, þau Gunnar Atla, Ólaf Bjarna og Eldeyju Sif. Foreldrar Þórðar eru Auður Haraldsdóttir og Gunnar Björn Rögnvaldsson. Þórður vinnur á Stoð verkfræðistofu ehf.Meira -
AÐSENT - Jón Stefán Gíslason: Hrakfallabálkur af hálendinu, febrúar 1973
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 28.03.2024 kl. 12.00 siggag@nyprent.isFlugbjörgunarsveitin í Varmahlíð var stofnuð 17. október árið 1971. Hún byggði á hugsjón heimamanna, fyrirmynd úr Reykjavík og að miklu leiti vegna áhuga Brynleifs Tobíassonar á flugi. Með aukinni umferð lítilla flugvéla blasti við að slys eða óhöpp gætu orðið tíðari og ekki alltaf á aðgengilegum stöðum. Mannkraftur var nógur og í góðu formi en tækjakostur enginn. Við fengum aðstöðu í Gamla Lundi sem þá stóð auður og var í eigu Sigurpáls Árnasonar.Meira -
Sigríður Hrund lagði land undir fót
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 28.03.2024 kl. 10.50 oli@feykir.isFyrsta legg hringferðar Sigríðar Hrundar um landsbyggðina er nú lokið. Sigríður Hrund lagði land undir fót og heimsótti fjóra staði á Norðurlandi; Sauðárkrók, Siglufjörð, Dalvík og Akureyri og voru viðtökur góðar. Markmiðið var að eiga beint og milliliðalaust spjall við þjóðina á heimavelli og heppnaðist það vel. Mæting var góð og sköpuðust innihaldsríkar umræður. Sigríður kom líka í hádegisspjall á Hvammstanga og heimsótti Dalamenn.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.