Þrír Skagfirðingar bikarmeistarar helgarinnar
Stjarnan úr Garðabæ varð bikarmeistari kvenna í knattspyrnu í fyrsta skiptið er liðið lagði Val í hörkuspennandi úrslitaleik á laugardag 1 – 0. Í liðinu leika þær systur, Inga Birna og Elva Friðjónsdætur Bjarnasonar læknis og Auðar Aðalsteinsdóttur sjúkraþjálfara á Sauðárkróki og í liðsstjórninni situr Margrét Guðný Vigfúsdóttir Vigfússonar fyrrum hótelstjóra og Lovísu (Lollu) Björnsdóttur í Blómabúðinni á Króknum.
Inga Birna og Elva léku hófu báðar sína knattspyrnuferla með Tindastól en héldu svo á vit ævintýranna, til Akureyrar, þar sem Inga Birna lék eitt tímabil með Þór/KA/KS en fór þá til Breiðabliks en hefur verið í Stjörnunni frá árinu 2006. Elva lék með Þór/KA frá 2008 en gekk til liðs við Stjörnuna fyrir þetta tímabil.
Saga Margrétar Guðnýjar er á sömu nótum og systranna þar sem hún lék eitt tímabil á Akureyri eftir að hún kvaddi herbúðir Tindastóls en fór þá til Stjörnunnar árið 2005. Í dag er Margrét aðstoðarliðsstjóri hjá Stjörnunni en leikur með ÍR í fyrstu deildinni. Feykir sendi Margréti nokkrar spurningar í tilefni bikarsigursins og byrjaði á að spyrja um meiðslin sem hefur verið að hrjá hana.
Ég hef verið meira eða minna meidd í hné síðustu 3 ár. Byrjaði að sjá fram á bata í maí á þessu ári og þar sem að ég hafði ekki spilað síðan snemma árs 2011 ákváðum við, þjálfarinn og ég, að ég færi á lánssamning í ÍR til að komast í gang aftur. Spilaði sem sagt seinnihluta tímabilsins með þeim. Þannig að í sumar er ég bara búin að vera aðstoðarliðsstjóri á bekknum hjá Stjörnunni og æfi mest með þeim.
Það hafa nokkrar skagfirskar stúlkur leikið með Stjörnunni gegnum tíðina, hvernig stendur á því?
Ætli það hafi ekki byrjað með mér. Það vantaði skyndilega þjálfara í 2. flokk kvenna fyrir sumarið 2005 og gekk ekki vel að finna nýjan þjálfara. Króksarinn Hugi Halldórs var fluttur í bæinn og ég og önnur stelpa í Stjörnunni gengum á eftir honum í starfið. Hugi hafði einmitt þjálfað okkur í Tindastól með góðum árangri og var góður fengur. Í framhaldinu af því skiptu yfir fyrst Helga Einars og síðan Inga Birna eftir tímabilið. Urðum einmitt íslandsmeistarar tvö ár í röð undir stjórn Huga. Síðan kom Elva, systir Ingu, til okkar fyrir þetta tímabil.
Hvernig var stemningin fyrir leikinn?
Stemmningin var góð fyrir leik, vorum á siglingu eftir tvo góða leiki á móti FH og Breiðablik. Allar mjög einbeittar og tilbúnar í slaginn. Engu var breytt í undirbúningi eins og stundum er gert fyrir svona stóra leiki og ég held að það hafi reynst vel uppá spennustigið og þægindi.
Áttuð þið von á sigri?
Áttum alveg eins von á sigri. Í leikjum á milli þessara tveggja liða uppá síðkastið hefur verið rosalega mikil barátta og skemmtilegir leikir. Vorum bara vissar um að ef við myndum ná að spila okkar bolta og vera samstíga í sókn og vörn þá myndi þetta lenda okkar megin.
Hvernig var haldið upp á titilinn?
Það var slegin upp veisla í Stjörnuheimilinu með leikmönnum, liðstjórn og stjórn. Borðaður dýrindis matur og skemmtilegheit fram eftir kvöldi. Þó var allt í hófi stillt þar sem að næsti leikur er ekki langt undan. Og þó svo að Þór/KA sé í mjög vænlegri stöðu þýðir ekkert nema að vona að þær misstígi sig og þá þurfum við að vera viss um að hafa lagt okkur 100% fram í alla leiki og vona að það dugi.