Þröstur Jónsson nýr formaður körfuknattleiksdeildar
Á aðalfundi körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem haldinn var á mánudagskvöld var Þröstur Jónsson kjörinn nýr formaður deildarinnar. Meðal málefna sem tekin voru fyrir var samþykkt að senda meistaraflokk kvenna til leiks í Íslandsmóti á næsta keppnistímabili en hann hefur ekki verið starfræktur um árabil.
Á heimasíðu Tindastóls segir að lítilsháttar tap hafi verið á rekstri meistaraflokksins, eða upp á um 304 þúsund. Tekjur voru 20.639.118 en gjöld 20.943.275. Rekstur unglingaráðs skilaði hins vegar 198 þúsund krónum í hagnað, tekjur upp á 5.192.304 og gjöld kr. 4.993.568.
Geir Eyjólfsson formaður og Hólmfríður Sveinsdóttir gáfu ekki kost á sér áfram og var Þröstur Jónsson kjörinn formaður deildarinnar í stað Geirs. Þá kemur Ólafur Björn Stefánsson nýr í stjórnina. Auk Þrastar og Ólafs sitja í stjórninni þau Jón Ingi Sigurðsson, Ásmundur Baldvinsson, Una A Sigurðardóttir og Gunnlaugur Sighvatsson.