Þrymur tók þátt í Pollamótinu á Akureyri
Þungavigtarlið Þryms tók þátt í Pollamótinu á Þórssvæðinu á Akureyri dagana 6. - 7. júlí. Mótið var haldið í 25. skipti og tókst vel til, en sem kunnugt er eru það pollar sem komnir eru af léttasta skeiði sem taka þátt í mótinu og sem betur fer engin þungatakmörk á Þórssvæðinu.
Lið Þryms var skipað nokkrum þekktum skagfirskum tuðruþeyturum í bland við minna þekkta tuðruþeytara, bæði hérfirska og austfirska. Gísli Sig og Guðbrandur Guðbrands teljast sennilega til reyndari leikmanna liðsins en þarna sprettu einnig úr spori boltakúnstnerar á borð við Sigurbjörn í VÍS, Óla á Bergsstöðum, Tengilstappana Pétur Inga og Gunnar Inga og Bræðsluforingjann og bombuþeytarann Áskel Heiðar. Það var Albert Hansson sem fór fyrir hópnum og dró í lið.
Lið Þryms tók þátt í C-riðli Lávarðadeildar Pollamótsins og með þeim í riðlinum voru Bjartar Vonir Vakna, Víkingur, Umf. Óþokki og og ÍR. Óstaðfestar fregnir herma að Þrymverjar hafi staðið sig framar vonum; unnið einn leik, tapað einum og gert tvö jafntefli en þessar upplýsingar gætu tekið breytingum eftir því hver er spurður. Árangurinn er þó allrar athygli verður í ljósi þess að liðið hafði ekkert æft fyrir mótið og vitað er til þess að nokkrir leikmanna urðu að hefja þátttöku á því að kaupa sér (eða fá lánaða) fótboltaskó.
Rétt er að taka ofan fyrir þessum höfðingjum sem þessa dagana þrá að öllum líkindum kalda bakstra og hvíld frá flestri áreynslu en heimildir herma að þó einhverjir beri sig ekki rosalega vel hafi allir Þrymsmenn komist að mestu óslasaðir frá Pollamótinu.
Það var Didda Sævars sem tók þessa frábæru mynd af köppunum.