Þyrfti fleiri dagforeldra á Sauðárkróki

Staða leikskóla- og dagforeldramála á Sauðárkróki var kynnt á síðasta fundi fræðslunefndar Svf. Skagafjarðar en mikil umræða hefur farið fram á samfélagsmiðlum varðandi skort á dagmæðrum. Ákveðið var að auglýsa eftir dagforeldrum til starfa auk þess sem allra leiða verði leitað til að leysa þann vanda sem upp er kominn í dagvistunarmálum m.a. með því að gera starf dagforeldra fýsilegra.

Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs segir að staðan í dagvistarmálum á Sauðárkróki virðist ætla að verða mjög erfið á þessu ári. „Miðað við stöðuna þegar þetta er skrifað er búið að skrá 31 barn á biðlista sem verða eins árs á árinu og viðbúið er að fleiri börn eigi eftir að bætast við þar sem misjafnt er hve snemma foreldrar skrá börn sín. Eins og listinn er í dag þá eru 10 börn nú þegar orðin eins árs. Til viðbótar þessum 10 börnum verða 12 börn eins árs á tímabilinu mars-maí og níu börn til viðbótar verða orðin eins árs á tímabilinu júní-september. Samtals verða því 31 barn orðið eins árs við inntöku í leikskólann í haust.  Gert er ráð fyrir að hægt verði að taka inn 20 börn í haust og því ljóst að ekki verður hægt að taka inn öll börn. Því er útlit fyrir að 11 börn fái þá ekki leikskólavist í haust. Þetta þýðir að barn nr. 21 á biðlista verður orðið 27 mánaða, eða tveggja ára og þriggja mánaða, að öllu óbreyttu, þegar það kemst inn í leikskóla,“ segir Herdís.

Dagforeldrar, sem brúað hafa bilið í dagvistun barna frá því að fæðingarorlofi sleppir, hafa leyfi til að hafa að hámarki fimm börn í vistun að eigin börnum meðtöldum. Herdís segir að nú starfi tveir dagforeldrar á Sauðárkróki með samtals níu börn í vistun. „Til að anna biðlista þyrftu starfandi dagforeldrar að vera á bilinu 5-6. Ekkert útlit er fyrir að auðveldara verði að fá dagforeldra til starfa miðað við núverandi stöðu á vinnumarkaði.“

Herdís segir að enginn hafi nýtt sér svokallað ömmuleyfi, þar sem börnum er komið fyrir hjá nákomnum ættingjum, eða aupair starfsmann, og er niðurgreitt af sveitarfélaginu þrátt fyrir að bent hafi verið á möguleikann.

Í Feyki sem kemur út á morgun er farið ítarlega yfir dagvistunarmál í Skagafirði.

Fleiri fréttir