Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu

Vandi fylgir vegsemd hverri og það fær knattspyrnudeild Tindastóls nú að sjá, þá leiktíð sem brátt hefst í 1.deild en ýmsar leyfisveitingar eru háðar því að ströngum skilyrðum sé uppfyllt. Ein af þeim er að hafa öryggisverði á heimaleikjum félagsins.

Hlutverk þeirra er að fylgja dómurum til og frá búningsklefa og passa að áhorfendur fari ekki yfir öryggislínu á vellinum. Nú leitar Tindastóll eftir áhugasömu fólki í öryggisgæslu sem uppfyllt gætu þær kröfur sem settar eru og hvattir til að hafa samband við við Stefán Arnar í síma 660-4685 eða Skúla Vilhjálm í síma 8645305.

Fleiri fréttir