Tindastóll gerir jafntefli við Þór
Þriðji flokkur kvenna í knattspyrnu gerði góða ferð á Akureyri sl. sunnudag og gerðu 2 - 2 jafntefli við lið Þórs. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var leikurinn jafn frá fyrstu mínútu og kom fyrsta markið frá Tindastól eftir um 20 mínútna leik en þar var að verki Kolbrún Ósk Hjaltadóttir með góðu skoti utan úr teig.
Eftir markið gaf Tindastóll heldur eftir og Þór tók völdin á vellinum og náði að jafna rétt fyrir hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks komust Þórsstelpur svo yfir, samkvæmt heimasíðunni. En síðustu 20 mínútur leiksins tóku Tindastólsstelpur leikinn yfir og tókst Hugrúnu Pálsdóttur að jafna eftir að hafa fylgt á eftir góðri sókn. Leikurinn kláraðist svo án þess að liðin fengju góð færi.
„Frábær leikur hjá okkar stelpum sem hafa undanfarin ár verið a draga jafnt og þétt á Þórsstelpurnar og í dag sýndu þær að þær eru fullsamkeppnishæfar við þær,“ segir loks á heimasíðu Tindastóls.