Tindastóll í hörkukeppni í Stykkishólmi

Jæja góðir félagar nú er komið að því, segir á Fésbókarsíðu stuðningsmanna Tindastóls í körfunni, komið að hinum fjórum fræknu sem verða í Stykkishólmi í dag. Þá er átt við undanúrslit Lengjubikarsins verða leikin verða í Stykkishólmi, en sigurvegarar þeirra viðureigna mætast svo í úrslitaleik á laugardag á sama stað.

Tindastóll mætir sterku liði Þórs frá Þorlákshöfn kl. 18.30 og á heimasíðu Tindastóls segir að þessi lið hafi ekki mæst áður í vetur, en strax í næstu viku mæta Þórsarar í Síkið í deildinni. Allir sem geta eru hvattir til að mæta í Stykkishólm og hvetja strákana okkar og upplifa frábæra stemmingu. Fyrir þá sem engan veginn sjá sér fært að koma, segir á Fésbókinni, geta séð leikinn á Kaffi Krók þar sem hann verður sýndur. Þar verður tilboð á kvöldverði á 1500 kr. og 25% af því rennur til strákanna okkar.

Og í matinn verður ........

  • Ofnbakaður kjúklingaréttur
  • Nautapottréttur
  • og meðlæti
  • ...og gos

Leikurinn hefst klukkan 18:30

Fleiri fréttir