Tindastóll lagði heimamenn í Snæfelli og sigraði í Lengjubikarnum
Tindastóll vann öruggan sigur á heimamönnum í Snæfelli í dag þegar liðin léku til úrslita í Lengjubikarnum. Stólarnir stungu af í þriðja leikhluta og Snæfellingum tókst ekki að komast með tærnar hvar Tindastólsmenn höfðu hælana í fjórða leikhluta og lokatölur 81-96. Feykir óskar Stólunum til hamingju með glæsilegan baráttusigur en þetta var aðeins annar titillinn sem meistaraflokkur Tindastóls í körfubolta landar í sögu félagsins.
Byrjunarlið Tindastóls skipuðu George Valentine, Drew Gibson, Helgi Freyr, Helgi Rafn og Ingvi Rafn. Það voru heimamenn í Snæfelli sem fóru betur af stað, komust í 11-5 og 16-10, en Stólarnir minnkuðu muninn í 2 stig fyrir lok leikhlutans en þá kom Þröstur Leó sterkur inn með fimm stig. Staðan 20-18. Svabbi jafnaði í byrjun annars leikhluta en Snæfellingar voru fljótir að ná frumkvæðinu á ný og upp úr miðjum leikhluta voru þeir búnir að ná 11 stiga forystu, 40-29. En Stólarnir gáfust ekkert upp þótt á móti blési og náðu með harðræði að ná í skottið á heimamönnum fyrir hlé. Staðan 45-44 fyrir Snæfell í leikhléi.
Þriðji leikhluti var frábær hjá Stólunum. Snæfell jók reyndar forystuna í 48-44 en þá gerðu Stólarnir 12 stig í röð og breyttu stöðunni í 48-56. Þá vöknuðu heimamenn úr rotinu en gekk engu að síður illa að eiga við Stólana sem voru komnir í mikinn ham. Drew Gibson náði 10 stiga forskoti fyrir Stólana, 54-64 og eftir tvær körfur frá Valentine og eitt vítaskot til var staðan orðin 57-72. McQueen lagaði stöðuna fyrir Snæfell fyrir lok þriðja leikhluta með því að setja niður tvö víti. Staðan 59-72.
Tindastólsmenn héldu haus í fjórða leikhluta. Snæfell náði muninum niður í sjö stig þegar tæpar 4 mínútur voru eftir af leiknum en Þröstur Leó, sem var í bullandi stuði í dag, bætti tveimur stigum við og Valentine gerði enn betur og staðan 75-86 þegar rétt rúm mínúta var eftir af leiknum. Síðustu mínútuna brutu Snæfellingar ótt og títt til að reyna að vinna tíma en þeir brutu ávallt á Þresti sem var öryggið uppmálað á línunni. Leiknum lauk síðan með viðeigandi troðslu frá Valentine og lokatölur 81-96 fyrir Tindastól.
Stólarnir sýndu hörkuleik í dag og börðust allir sem einn. Stigahæstur í liði Tindastóls var Þröstur Leó með 27 stig, Valentine átti flottan leik og skilaði 26 stigum og 13 fráköstum, Gibson var með 16 stig og 8 stoðsendingar. Þá fór Helgi Rafn fyrir sínum mönnum og var rosalegur í þriðja leikhluta en kappinn gerði 16 stig og endaði leikinn með 5 villur en tók við Lengjubikarnum í lokin og það var heila málið!
Stig Tindastóls: Þröstur Leó 27, Valentin 26, Gibson 16, Helgi Rafn 16, Svabbi 6, Helgi Freyr 3 og Ingvi 2.