Tindastóll – Njarðvík í FeykirTV

Tindastólsmenn mörðu baráttuglaða Njarðvíkinga í Síkinu sl. fimmtudagskvöld en gestirnir þurftu að sigra heimamenn með yfir átta stiga mun til að stela af þeim sjöunda sætinu í Iceland Express deildinni. Njarðvíkingar gerðu ágæta atlögu en þegar upp var staðið höfðu heimamenn betur. Lokatölur urðu 81-79 en með sigrinum tryggðu Stólarnir sér sjöunda sætið í deildinni og leika við KR í úrslitakeppninni. Áfram Tindastóll!

http://www.youtube.com/watch?v=aZNeFK9HwoE

Fleiri fréttir