Tindastóll og KA skiptu stigunum á milli sín
Tindastóll náði ágætum úrslitum þegar þeir skruppu norður yfir Öxnadalsheiði í dag og kræktu í jafntefli gegn liði KA á Akureyrarvelli. Fjörið var mest í fyrri hálfleik en þá voru öll fjögur mörk leiksins gerð. Lokatölur 2-2.
Fyrri hálfleikur var ljómandi vel spilaður og Stólarnir sterkari aðilinn ef eitthvað var. Ben Everson kom Tindastólsmönnum yfir eftir 11 mínútur, lyfti boltanum laglega yfir markmann KA eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir vörnina. Brian Gilmour var snöggur að jafna metin og síðan komust heimamenn yfir á 28. mínútu með marki Ævars Inga Jóhannessonar sem kom boltanum í markið eftir að Seb Furness hafði varið vel skot David Distl. En rétt áður en dómarinn flautaði til leikhlés jafnaði Ingvi Hrannar Ómarsson eftir stungusendingu frá Max Touloute, en Max gerði mikinn usla í vörn KA í leiknum.
Ben fór útaf meiddur í hálfleik og Fannar Freyr Gíslason, sem kom inn í hans stað, var nálægt því að koma Stólunum yfir í byrjun síðari hálfleiks en markvörður KA sá við honum. Liðin skiptust síðan á um að stjórna leiknum en KA gerði mark um miðjan hálfleikinn sem dæmt var af. Síðustu mínútur leiksins pressuðu KA-menn stíft en náðu ekki að skora. Jafntefli því niðurstaðan og hún sanngjörn. Það er hins vegar ljóst að þetta var gott stig fyrir Stólana.