Tindastóll sækir Ísfirðinga heim í kvöld
Í kvöld lýkur 14. umferð í Domino´s deild karla þegar KFÍ tekur á móti Tindastól í Jakanum á Ísafirði. Umferðin hófst í gær þar sem Snæfell og Grindavík unnu toppslagina og Njarðvík og Skallagrímur tóku tvö dýr stig. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er hann sýndur beint á KFÍ TV.
Þetta verður fyrsti leikur Roburt Sallie sem gekk fyrir skömmu til liðs við Stólana en mikil eftirvænting ríkir hjá stuðningsfólki að sjá hann í leik þar sem hann hefur komið vel út á æfingum. Á Tindastóll.is segir að hann hafi sýnt lipra takta á æfingum og látið vel í sér heyra, hvatt menn áfram og leiðbeint og vonir standa til að hann geti styrkt liðið. Hann mun koma í stað Drew Gibson sem er á leið frá félaginu en hann glímir við meiðsli.
Strax á eftir leik Stólanna og KFÍ munu unglingaflokkar þessara liða spila í Íslandsmótinu. Leikurinn verður í beinni tölfræðilýsingu á kki.is.
Stuðningsmenn eru hvattir til mæta á Mælifelli og horfa saman á leikinn en eins og áður renna 25% af veitingasölu í sjóði körfuknattleiksdeildar.