Tindastóll sigraði Snæfellsnes í bikarnum
Meistaraflokkur kvenna í Tindastól gerði góða ferð á Grundafjörð í gær er leikið var við lið Snæfellsnes í bikarkeppni KSÍ. Veður var mjög óhagstætt íþróttinni, hvassviðri með miklum hviðum, grenjandi rigning og til að gera ástandið enn dramatískara gerði haglél, leikmönnum til lítillar gleði.
Þrátt fyrir þessa himnasendingu náði Tindastóll að skora eitt mark í fyrri hálfleik en þar var á ferðinni Hugrún Pálsdóttir sem unnið hefur sér sæti í liðinu þrátt fyrir ungan aldur. 1 – 0 var staðan í hálfleik.
Í seinni hálfleik var enn gefið í því þrír boltar höfnuðu í neti gestgjafanna áður en yfir lauk. Reynsluboltinn Svava Rún Ingimarsdóttir skoraði annað mark Stólanna, hin unga og efnilega Bryndís Rún Baldursdóttir skoraði þriðja markið og sú eldsnögga Þóra Rut Jónsdóttir setti punktinn yfir I-ið og setti það fjórða.
Í næstu umferð fara stelpurnar á Skagann og keppa við ÍA sem lagði ÍR 1 – 0 á miðvikudag á heimavelli. Fer leikurinn fram þriðjudaginn 5. júní kl: 20:00.
Pétur Björnsson er þjálfari hjá stelpunum og nú er nýbúið að ráða hinn gamalreynda kappa Snorra Geir Snorrason sem aðstoðarþjálfara.