Tindastóll spilar úrslitaleikinn í Lengjubikarnum gegn Snæfelli í dag

Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir í gærkvöldi og lögðu Þór Þorlákshöfn, 82-81, í undanúrslitum Lengjubikarsins en leikurinn fór fram í Stykkishólmi. Fyrir vikið mæta Stólarnir öflugu liði Snæfells í úrslitaleik sem fram fer á sama stað kl. 16 í dag. Þetta er þá annar úrslitaleikurinn sem Tindastóll spilar á árinu og verður að teljast athyglisverður árangur.

Þórsarar voru öflugri framan af leik í gær, voru sex stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 16-22, og náðu síðan 12 stiga forystu snemma í öðrum leikhluta, 18-30. Þá snérist leikurinn á hvolf og Stólarnir gerðu á 5 mínútna kafla 17 stig en Þór ekkert og staðan 35-30. Í hálfleik leiddu Stólarnir með einu stigi, 39-38.

Síðari hálfleikur var æsispennandi en lið Tindastóls þó yfirleitt skrefinu á undan Þórsurum. Mestur varð munurinn níu stig eftir að Ingvi Rafn lagði boltann í körfuna, 52-43, en 90 sekúndum síðar var munurinn orðinn 1 stig, 52-51. Svabbi gerði síðustu stigin í þriðja leikhluta og Tindastóll hafði 3ja stiga forystu, 66-63,  fyrir lokafjórðunginn.

Það var allt í járnum framan af fjórða en um miðjan leikhlutann settu Helgi Margeirs og Þröstur Leó niður tvo þrista á skömmum tíma og Stólarnir náðu 5 stiga forystu og síðan bætti Helgi Rafn við forskotið. Staðan 80-73 þegar fjórar mínútur voru eftir. Eftir þetta gekk hvorki né rak í sóknarleik liðanna. Þórsurum gekk þó betur og þeir söxuðu á forskotið. George Valentine skoraði síðustu stig Stólanna í leiknum þegar tvær og hálf mínúta voru eftir, staðan 82-78. Guðmundur Jónsson setti niður þrist fyrir Þór í næstu sókn og það er skemmst frá því að segja að ekkert var skorað síðust tvær mínútur leiksins þrátt fyrir margar ágætar tilraunir beggja liða. Lokatölur 82-81.

Frábær sigur Stólanna og sæti í úrslitaleiknum staðreynd. Þar mæta okkar menn heimamönnum í Snæfelli og toppliði Dominos-deildarinnar. Það verður því við ramman reip að draga en það er allt hægt í þessum bolta og engin ástæða til að mæta með hangandi haus. Stólarnir hafa ekki lyft bikar síðan Lárus Dagur þeytti Eggjabikarnum í loft upp um árið og alveg kominn tími til að endurtaka leikinn. Þeir sem ekki fara rúntinn í Stykkishólm er bent á að leikurinn verður sýndur á Sport TV.

Áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: George Valentine 24 / 12 fráköst, Drew Gibson 17 / 13 stoðs, Helgi Margeirs 11,  Helgi Rafn 9, Ingvi 8, Þröstur Leó 5, Pétur 3, Sigtryggur Arnar 3 og Svabbi 2.

Fleiri fréttir