Tindastóll - Þróttur í kvöld

Á Sauðárkróksvelli kl:20:00 í kvöld eigast við karlalið Tindastóls og Þróttar úr Reykjavík en liðin eru nú jöfn að stigum í 1. deildinni með 11 stig ásamt ÍR og BÍ/Bolungarvík. Heimamenn hafa þó spilað einum leik færra og eru því skráðir fyrstir í þeim klasa og því til mikils að vinna og búast má við hörkuleik í kvöld.

Ýmsar sögusagnir hafa verið um það að önnur lið ætli sér að krækja í einhverja af þeim frábæru erlendu leikmönnum sem leika með Tindastóli í sumar en Ómar Bragi Stefánsson formaður knattspyrnudeildarinnar segir að ekkert slíkt sé á hans borði og vonar að verði ekki. Segja má að Tindastólsliðið hafi staðið vel undir væntingum en því var spáð fallsæti í upphafi vertíðar. Deildin er gríðarlega jöfn en Víkingur Ólafsvík og Haukar tróna á toppnum með 19 stig eftir 10 leiki en á hæla þeirra kemur  Fjölnir með 18 stig. Í 4. sæti er Þór með 14 stig eftir 9 leiki og samborgarar þeirra í KA með 12 stig eftir 10 leiki. Þá koma fjögur lið í hnapp öll með 11 stig en eins og áður sagði er Tindastóll með 9 leiki að baki en Þróttur ÍR og BÍ/Bolungarvík 10 leiki. Þrjú neðstu liðin eru einnig jöfn að stigum og aðeins einu stigi frá fyrri grúppu eða 10 stig. Það eru Leiknir, Víkingur Reykjavík og Höttur.

Nú er engin afsökun fyrir því að mæta ekki á völlinn í kvöld og eru því allir sem geta komið sér á milli staða hjálparlaust hvattir til að mæta og hinir að útvega sér aðstoð við að mæta.

Fleiri fréttir