Tindastólsmenn með fjögur í einum leik í Pepsi-deildinni

Það er ekki á hverjum degi sem Tindastólsmenn gera fjögur mörk í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu en þau tíðindi áttu sér stað þegar Valur og Breiðablik mættust þann 8. ágúst. Að sjálfsögðu eru leikmennirnir þrír sem gerðu mörkin fjögur fyrrum leikmenn Stólanna en athyglisvert engu að síður.

Markaskorarnir sem um ræðir eru þeir Kolbeinn Kárason og Rúnar Már Sigurjónsson sem leika með Val og Ben J. Everson sem skipti úr Tindastóli í Breiðablik nú í júlí.

Boxarinn Kolbeinn, sem lék með Stólunum í byrjun móts síðasta sumar, kom Val í 1-0 og Króksarinn Rúnar Már, sem leikið hefur glimrandi vel með Val í sumar, bætti við marki úr vítaspyrnu. Kolbeinn kom Val síðan í 3-1 áður en leikmenn Hlíðarendaliðsins fóru á taugum og Blikarnir tóku völdin á vellinum þrátt fyrir að vera einum færri. Það var einmitt Ben okkar J. Everson sem gerði sigurmark Breiðabliks í uppbótartíma í frábærum 3-4 sigri.

Fleiri fréttir