Tómstundahópur RKÍ í vorferð

Tómstundahópur Rauðakross Íslands í Skagafirði lagði af stað í vorferð sína eftir hádegið í gær og stefndi suður yfir heiðar, alla leið á Selfoss. Þar gista þau á hótel Selfoss í tvær nætur og ætla sér að gera ýmislegt skemmtilegt á meðan þau dvelja á suðurlandinu, sagði Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir  sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum.

„Eins og stundum áður, þó lagt sé upp með góð áform, þá snýst ferðin um mat! En á milli málsverða þá ætlum við að slappa af og hafa það gott og heimsækja Sólheima í Grímsnesi og dvelja þar bróðurpart úr laugardeginum,“ sagðir Auðbjörg í samtali við Feyki á leiðinni suður.

Í dag, laugardag, er Menningarveisla í Sólheimum og hefst dagskráin kl. 13 og samkvæmt Auðbjörgu hlakkar hópnum til að eyða deginum þar.

Veðrið er ekki af verri endanum, glampandi sól og miðstöðin í langferðabílnum okkar er stillt á næstum alkul. Búið að opna toppinn til að fá frekari svala og renna sumir augum á skaflana sem enn sjást á Holtavörðuheiðinni og reyna að fá ferðaáætlun breytt í að vera með viðkomu við einhvern þeirra,“ segir Auðbjörg en hægt er að fylgjast með hópnum á ferð sinni um suðurlandið hér á heimasíðu þeirra.

 

Fleiri fréttir