Tónleikar og nýr matseðill á döfinni hjá Gránu
Það verður viðburðarríkt í húsakynnum Gránu og 1238 á Sauðárkróki næstu vikur, en fyrirhugað er að halda tvenna tónleika þar, í nýjum tónleikasal sem vígður var sem slíkur í Sæluvikunni þegar tónleikar með lögum eftir skagfirskar konur fóru þar fram. Þriðjudaginn 1. júní mun Bríet koma þar fram og í vikunni á eftir, mánudaginn 7. júní munu þeir Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn stíga á svið.
Blaðamaður Feykis settist niður með Áskeli Heiðari Ásgeirssyni, framkvæmdastjóra 1238: The Battle Of Iceland, í nýja tónleikasalnum og forvitnaðist um þá viðburði sem eru á döfinni.
„Forsagan er sú að við erum búin að gera nokkrar tilraunir með tónleika í veitingasalnum okkar og það gekk mjög vel og svo prufuðum við núna í lok Sæluviku að vera með tónleika hérna í einum af sýningarsölum 1238. Það gekk mjög vel og við ætlum að halda tvenna tónleika þar núna í byrjun júní. Í næstu viku, 1. júní, er Bríet hjá okkur og síðan mánudaginn 7. Júní koma Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn. Síðan geri ég ráð fyrir því að við notum þennan sal, sýningarsal, fyrst og fremst fyrir ferðafólkið okkar í sumar, öðru góðu íslendingasumri vonandi, í bland við erlenda gesti. Síðan í haust ætlum við aftur að innrétta þennan sal sem tónleika- og viðburðasal og gefa allt í botn í viðburðahaldi næsta haust.“
„Það verða örugglega einhverjir fleiri tónleikar sem detta inn hjá okkur í sumar, margir tónlistarmenn eru áhugasamir um að koma við hjá okkur, ég hef frekar trú á því að það yrði núna fyrripart sumars og síðan seinnipart sumars, kannski minna svona yfir hásumarið.“ Segir Áskell.
Veitingastaðurinn Grána hefur þurft að aðlaga sig að sóttvarnarreglum í vetur en stefnt er á að starfsemi Gránu fari í eðlilegan fasa á næstunni.
„Við erum svona að skríða aftur úr vetrardvala, getum við sagt að einhverju leyti eða vetrarforminu sem er búið að vera mikið svona „take away“ og byggt í kringum covid og það allt saman, en við erum að byrja núna í næstu viku aftur með opnun í hádeginu og síðan er kominn bæði nýr hádegisseðill og svo nýr kvöldmatseðill, sem verður unnið með í sumar. Við verðum áfram með landsliðskokkinn Kristinn Gísla í eldhúsinu og fleiri snillinga og ætlum að keyra á framúrskarandi mat í sumar úr skagfirskum hráefnum.“ Segir Áskell Heiðar að lokum.
Sýningin 1238 um Sturlungaöldina og upplýsingamiðstöð ferðamanna í Gránu verða síaðn opnar alla daga í sumar frá 1 júní frá 11-16 og frá 1. júlí frá 11-17.
/SMH