Tónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar
Nemendur Tónlistarskóla Skagafjarðar munu halda áfram að leika af fingrum fram á Jólatónleikaröð skólans í dag í húsnæði skólans á Sauðárkróki, á morgun í Miðgarði Varmahlíð og aftur á Króknum á miðvikudaginn. Leikið var í Grunnskólanum á Hólum og félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi sl. laugardag.
Allir eru velkomnir að mæta og segir Sveinn Sigurbjörnsson að m.a. komi mjög skemmtilegar grúppur fram sem leiki lög í eigin útsendingum.
Allir eru velkomnir að mæta og hlýða á hljóðfæraleikara framtíðarinnar.