Tónlistarveislan hefst í kvöld
Þá er loksins komið að augnablikinu sem margir hafa beðið eftir - Tónlistarhátíðin Gæran á Sauðárkróki hefst í kvöld. Tónlistarveislan fer af stað með sólóistakvöldi á Mælifelli og byrjar dagskráin kl. 20.
Góð stemmning var á sólóistakvöldi Gærunnar 2011.
„Nú er allt í fullri sveiflu! Sviðið komið upp og kerfið á morgun. Svo er sólóistakvöldið á Mælifell á morgun, 1000 krónur inn fyrir þá sem ekki ætla á Gæruna. Verðum með miða til sölu á Gæruna á forsöluverði þar ef þú átt eftir að kaupa,“ segir á facebook-síðu Gærunnar.
Þeir tónlistamenn sem stíga á svið í kvöld eru eftirfarandi:
- Sóla og Sunna
- Sveinn Rúnar
- Þorgerður Jóhanna
- Fúsi Ben og Vordísin
- Myrra Rós
- Gillon
- Joe Dubius
- Ink City