„Ófermd, illa uppalin, afstyrmi á vöxt, tekin af flakki“
Haustfyrirlestur Heimilisiðnaðarsafnsins var haldinn laugardaginn 14. nóvember sl. Í þetta sinn var það Ingibergur Guðmundsson, fyrrverandi kennari og menningarfulltrúi sem steig þar á stokk. Fyrirlestur Ingibergs fjallaði einkum um stöðu lítilmagnans um miðja 19. öld og bar heitið “Ófermd, illa uppalin, afstyrmi á vöxt, tekin af flakki”.
Staðnæmdist Ingibergur sérstaklega við ómagan Júlíönu Sveinbjarnardóttur (1832-1887) sem var niðursetningur, fötluð og talin vitskert. Júlíana var á flakki nánast alla sína lífsgöngu og vistuð á ýmsum bæjum í Vindhælishreppi, hinum forna. Hún var barnsmóðir Sölva Helgasonar (1820-1895) listamanns og flakkara og finnast afkomendur þeirra bæði hér á landi og í Vesturheimi.
Fyrirlestur Ingibergs var sérlega áhugaverður og fróðlegur en miklar þjóðfélagsbreytingar hafa átt sér stað á síðustu 100 – 150 árum sem vert er að minnast og hollt að rifja upp.
Góðar umræður sköpuðust eftir fyrirlesturinn á milli viðstaddra og Ingibergs og í lokin áttu gestir notalega stund í kaffirými safnsins.
Elín S. Sigurðardóttir
