Tvær stöður við ferðamáladeild Hólaskóla lausar til umsóknar
Tvær stöður við ferðamáladeild Háskólans á Hólum hafa verið auglýstar lausar til umsóknar, þ.e. staða deildarstjóra ferðamáladeildar og staða háskólakennara við ferðamáladeild. „Starfsaðstaða deildarinnar í háskólaþorpinu á Hólum er góð, þar er fjölskylduvænt samfélag með grunnskóla og leikskóla,“ segir á heimasíðu Hólaskóla.
Við deildina er í boði háskólanám í ferðamálafræðum og viðburðastjórnun og lögð stund á rannsóknir og fræðastarf. Samkvæmt heimasíðu skólans hefur aðsókn nemenda og umsvif deildarinnar farið ört vaxandi undanfarin ár.
Í starfi stöðu deildarstjóra ferðamáladeildar felst:
- Fagleg ábyrgð á kennslu og rannsóknum innan deildarinnar sem og samstarfi við atvinnulíf, stoðkerfi og fræðasvið ferðamála
- Dagleg stjórnun ferðamáladeildar og starfsmanna hennar
- Þátttaka í stefnumótun, stjórnun og rekstri Háskólans á Hólum, seta í framkvæmdaráði
- Rannsóknir og kennsla
Leitað er að einstaklingi með:
- Doktorspróf á sviði ferðamálafræða eða tengdum fræðasviðum
- Reynslu af stjórnun, rannsóknum, kennslu og þróunarstarfi
- Leiðtogahæfileika, frumkvæði, framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og getu til að stýra samstarfi innan deildar sem utan
- Mikla skipulagshæfileika og yfirsýn
Umsækjandi þarf að geta hafið störf þann 1. sept. 2012, eða eins fljótt og hægt er. Umsóknir berist fyrir 1. júlí 2012. Umsóknir ásamt ferilskrá og persónulegu bréfi, sendist til Sigurbjargar B. Ólafsdóttur mannauðsstjóra, Háskólanum á Hólum, 551 Sauðárkróki, eða á netfangið sigurbjorg@holar.is .
Nánari upplýsingar veita Erla B. Örnólfsdóttir rektor s. 455 6300 / erlabjork@holar.iseða Kristina Tryselius deildarstjóri s. 863 2938 / kristina@holar.is .
Í starfi stöðu háskólakennara við ferðamáladeild felst:
- Kennsla á sviði menningar og ferðamála
- Kennsla á sviði hátíða og viðburða
- Leiðbeining nema í lokaverkefnum
- Þátttaka í stefnumótun ferðamáladeildar
- Mótun eigin rannsókna á sviðum deildarinnar
Menntunar og hæfniskröfur:
- Framhaldsmenntun á sviði ferðamálafræða, menningar og viðburða eða tengdra fræða, hæfi sem háskólakennari, doktorspróf æskilegt
- Reynsla af kennslu og rannsóknum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnu og færni í mannlegum samskiptum
Um fullt starf er að ræða. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. sept. 2012, eða eins fljótt og hægt er. Umsóknir berist fyrir 1. júlí 2012. Umsóknir ásamt ferilskrá og persónulegu bréfi, sendist til Sigurbjargar B. Ólafsdóttur mannauðsstjóra, Háskólanum á Hólum, 551 Sauðárkróki, eða á netfangið sigurbjorg@holar.is
Nánari upplýsingar veitir Kristina Tryselius deildarstjóri s. 863 2938 / kristina@holar.is.